SÁNUSAFARÍ

Haustferð til Lettlands

24. - 30. september 2026

Á sjö dögum leiðum við þig í gegnum dýpri og lengri sánumeðferðir. Ferðin sameinar sánumenningu, vellíðan, slökun, náttúru og lærdóm í litlum og nánum hópi

Verð með flugi kr. 320.000 á mann miðað við að 2 deili herbergi

Aðeins 10 pláss í ferðina. Lágmarksþátttakan - 6. Ef lágmarksþátttakan næst ekki, áskiljum við okkur rétt til þess að fella niður ferðina og ferðin endurgreidd að fullu.

Greiðsluskilmálar Staðfestingargjald er kr. 50.000 og tryggir bókun í ferð. Gjaldið er óafturkræft. Fullnaðargreiðsla skal berast 6 vikum fyrir brottför.

Hápunktar ferðar

  • Vellíðan og slökun – Fjölbreyttar og öðruvísi sánuheimsóknir

  • Náttúrutenging – Skógar, kyrrð, göngur og ró

  • Sánumenning – Ólíkar sánu-upplifanir  í einni ferð

  • Gæðastundir – Lítill hópur og persónuleg tengsl

Innifalið

  • Flug með Air Baltic til og frá Ríga og 1 innrituð taska

  • Sánumeðferðir, námskeið og samvera í fallegri náttúru

  • Gisting í 6 nætur

  • Einn morgunverður, fimm hádegisverðir, fimm kvöldmáltíðir

  • Persónuleg fararstjórn

  • Akstur með einkabílstjóra

Ekki innifalið

  • Persónulegur kostnaður

  • Viðbótarmáltíðir og drykkir

  • Viðbótarupplifanir sem eru ekki sérstaklega nefndar í dagskrá

  • Ferðatryggingar

Af hverju að velja þessa ferð

  • Fámennur 10 manna hópur með 2 fararstjórum, sem tryggja persónulega þjónustu og einstaka upplifun.

  • Þessi ferð er hönnuð fyrir þá sem vilja slaka á, tengjast náttúrunni og kynnast einstökum sánuhefðum.

  • Þetta er ferð þar sem líkami og hugur fá að hvílast, endurnærast og njóta.

Ferðalýsing

Hægt er að bóka beint í gegnum bókunarkerfi okkar hérna á þessari síðu, ef greitt er staðfestingargjald þá eru eftirstöðvar greiðslu greiddar með millifærslu eða greiðslulinkur sendur.

Endilega verið í sambandi við okkur ef þið hafið spurningar.
info@viamagica.is