SÁNUSAFARÍ

Haustferð til Lettlands

24. - 30. september 2026

Á sjö dögum leiðum við þig í gegnum dýpri og lengri sánumeðferðir. Ferðin sameinar sánumenningu, vellíðan, slökun, náttúru og lærdóm í litlum og nánum hópi.

Verð: 320.000 kr á mann miðað við að 2 deili herbergi.

Aðeins 10 pláss í ferðina. Lágmarksþátttakan - 6. Ef lágmarksþátttakan næst ekki, áskiljum við okkur rétt til þess að fella niður ferðina og ferðin endurgreidd að fullu.

Greiðsluskilmálar Staðfestingargjald er kr. 50.000 og tryggir bókun í ferð. Gjaldið er óafturkræft. Fullnaðargreiðsla skal berast 6 vikum fyrir brottför.

Hápunktar ferðar

  • Sánumeðferðir, námskeið og skógargöngur í Ziedlejas.

  • Vellíðan og slökun – Fjölbreyttar og öðruvísi sánuheimsóknir.

  • Náttúrutenging – Skógar, kyrrð, göngur og ró.

  • Sánumenning – ólíkar sánu upplifanir  í einni ferð.

  • Gæðastundir – Lítill hópur og persónuleg tengsl.

Innifalið

  • Flug með Air Baltic til og frá Riga.

  • Sánumeðferðir, námskeið og göngur.

  • Sex nætur á sérvöldum gististöðum.

  • Fimm hádegisverðir, fimm kvöldmáltíðir.

  • Persónuleg fararstjórn

  • Akstur með einkabílstjóra.

Ekki innifalið

  • Persónulegur kostnaður.

  • Viðbótarmáltíðir og drykkir.

  • Viðbótarupplifanir sem eru ekki sérstaklega nefndar í dagskrá.

  • Ferðatryggingar

Af hverju að velja þessa ferð

  • Fámennur 10 manna hópur með 2 fararstjórum, sem tryggja persónulega þjónustu og einstaka upplifun.

  • Þessi ferð er hönnuð fyrir þá sem vilja slaka á, tengjast náttúrunni og kynnast einstökum sánuhefðum.

  • Þetta er ferð þar sem líkami og hugur fá að hvílast, endurnærast og njóta.

  • Farþegar koma sér á Keflavíkurflugvöll á eigin vegum. Flogið er rétt eftir miðnætti og lent í Ríga snemma morguns 24. september. Eftir lendingu verðum við sótt á flugvöllinn og keyrum til Sigulda sem er fallegur lítill bær í klukkutíma fjarlægð frá flugvellinum. Þar er hægt að finna sér morgunmat, rölta um og kynnast hvort öðru í hópnum. Að því loknu er frjáls tími í bænum fram að innritun í gistinguna okkar. Í Sigulda gefst tækifæri til að skoða kastala, kíkja í notalegar verslanir, fá sér seremóníu kakó eða ganga um fallega og friðsæla náttúru Sigulda. Eftir innritun í Ziedlejas gefst tími til að slaka á eftir langt ferðalag í fallegu umhverfi og notalegum húsum fram að kvöldmat, þar sem einkakokkur eldar fyrir okkur dýrindis máltíð.

  • Námskeið þar sem þú lærir að búa til sánavörur til eigin nota og færð síðan að prófa þær í afslappandi sánudekri.

  • Endurnærandi sánumeðferðir sem erfitt er að lýsa með orðum. Í frjálsum tíma geturðu slakað á, lesið, komið með okkur í jóga, fengið þér kakó, leigt hjól eða gengið um Gauja-þjóðgarðinn. Ziedlejas er staður þar sem þú færð að kúpla þig út úr amstri dagsins og að njóta þín til fulls í slakandi umhverfi.

  • Við heimsækjum býflugnabýli þar sem við lærum um hunang og býflugnarækt áður en haldið verður til Ríga þar sem við gistum seinustu nóttina.

  • Njótum þess að skoða höfuðborgina og allt það skemmtilega sem hún hefur upp á að bjóða áður en flogið er heim seint um kvöldið.

Ferðalýsing

Hægt er að bóka beint í gegnum bókunarkerfi okkar hérna á þessari síðu, ef greitt er staðfestingargjald þá eru eftirstöðvar greiðslu greiddar með millifærslu eða greiðslulinkur sendur.